vinir
myndir
15.03.2010 01:57:14 / asta

a

hvað er ég búin að vera að gera í lífinu? aaafhverju var ég aldrei búin að horfa á high school musical myndirnar??

þvílíkar myndir..

ég er auðvitað ástfangin einsog þið gátuð gefið ykkur

http://img2.timeinc.net/people/i/2008/startracks/081020/zac_efron300.jpg

cuuute!

http://img2.timeinc.net/people/i/2009/startracks/091123/zac-efron-435.jpg

elskann!!


annars er þessi helgi á enda komin og okkur tókst ekki að koma siggu út.. vandræði!


ooog þið skuluð aldrei í ykkar lífi spila miðaleikinn með eiríki klippara, aldreialdrei

- ásta


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2010 20:17:26 / edda

Emí

Dóttir mín kom svona heim af leikskólanum í gær


Í framhaldi var ég boðuð í foreldraviðtal.
Við skulum vona að hitt barnið bíði þess einhverntímann bætur.

Annað er ekki að frétta nema Emilía kann að telja hærra en Sigga og kann fleiri lög en Ásta...kannski ekki erfitt að toppa en jæja. Hún er líka orðin trúaðri en Kristín og syngur Jesús bróðir bestir eins og ekkert sé auðveldara. Hún vonandi nær að sýna Kristínu ljósið einn daginn...

p.s. Ásta var í dag kosin sem virðulegur málfarsráðunautur kea.

-edda


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.03.2010 15:38:55 / kristin

faceplant?

ásta er komin heim frá dalvík þar sem hún var á skíðum með svona 20 krökkum.

hún tilkynnti okkur siggu að hún væri handleggsbrotin þegar við loksins náðum á henni eftir ferðina. við vitum ekki hvernig það gerðist samt, hún sagði að það hefði verið faceplant í skíðaklossaraci. við leitum enn útskýringa á því hvað það þýði.

með aðstoð google fundum við þetta:

http://www.thedorkreport.com/wp-content/uploads/2008/04/faceplant.jpg

en við höfum ekki enn náð tengingunni við skíðaklossa og handleggsbrot.

óskum eftir góðri þýðingu asap.

- kristín og sigga

ps: gleðilegan kínverskan konudag!

» 19 hafa sagt sína skoðun

05.03.2010 15:59:16 / kristin

helst í fréttum

ég nenni ekki að koma reglu á þessa færslu svo þetta verður punktablogg.

- í einum bekknum mínum eru 73 nemendur!!!! það er alveg 60 nemendum of mikið ef miðað er við grunnskóla-kennslu-reynslu mína frá bolungarvík.
- birna og ásta fóru í tveggja daga megrunarkúr sem fólst í því að svelta sig. svo kvörtuðu þær undan svengd. kannski hafa þær ekki enn fattað hvernig basic líkamsstarfsemi virkar.
- ég kenndi krökkunum orðið "vændiskona" í dag, vel gert það.
- edda er upptekin að vera mamma, eiginkona, pólitíkus, hjúskapar-miðlari, íþróttakennari, nemi.... ég kann ekki að telja hærra.
- fu jian ákvað að flytja ekki inn til mín heldur tók hann starfi sem honum bauðst í shanghai við að þvo upp diska fyrir 1300 rmb á mánuði, hvorki meira né minna en 24 þús kr. ísl. og ég sem var án gríns búin að undirbúa mig undir það að hafa hann við hliðin á mér í hjónarúminu næstu þrjá mánuði. ég hef þó ekki enn gefið það upp á bátinn að finna nýjan kínverja til að deila plássinu með mér.
- sigga er að venju stödd í einhverri draumaveröld. held hún hafi verið stödd á skemmtiferðaskipi síðan þegar ég heyrði í henni. eða í skagafirði... segir maður kannski á skagafirði?
- ef þið fáið spam frá ástu á skype að þá ekki láta ykkur bregða, hún er víst að fara hefja einhvern rekstur þar.



ég að vera hamingjusamasta manneskja heims eftir að hafa fundið kfc ís



nýju bestu vinir mínir

- kristín

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.03.2010 11:03:34 / kristin

hann fu jian

og nú hefst sögustund...

í hjólaferðinni stoppaði ég í lítilli borg sem heitir shirnian. þar gisti ég á hóteli þar sem ég endaði óvart sem heiðursgestur í brúðkaupi og fékk svo að borða með starfsfólkinu eftir að ég hafði borðað mig sadda af veislumat.

og einn af starfsmönnunum er tvítugur strákur sem hafði lært ensku upp á sitt einsdæmi, og ótrúlega góða ensku í þokkabót. mér fannst hann þrælmerkilegur. augljóslega þrælklár en hann vann við uppvask og fékk borguð 600 rmb á mánuði (rúmar 10 þús kr ísl, og það á tvöföldu gengi!). á einhvern ótrúlegan máta tekst honum samt að leggja pening til hliðar. málið er nefnilega að honum langar svo mikið í háskóla. og sökum erfiðra fjölskylduaðstæðna, mamma hans dó þegar hann var lítill og pabbi hans er fjárhættuspilari, að þá fær hann enga hjálp að heiman.

ég lét hann fá númerið hjá mér og sagði honum að vera í sambandi. kannski ég gæti hjálpað honum að læra meira í ensku, eða orðið af einhverri hjálp.

allavega, hann sendir mér skilaboð allt fríið! og svo kom eitt þar sem hann stakk upp á því að hann gerðist kínverskukennarinn minn og ég myndi borga honum 600 rmb á mánuði. ég svaraði alveg miður mín að því miður hefði ég bara ekki efni á því eins og er, verandi á kínverskum kennaralaunum. en það væri ekkert útilokað að ég myndi nýta mér það seinna, og þangað til gæti ég hjálpað honum að bæta enskuna hans.

og hann svaraði um leið með þessu:

"ok, i dont think money is the most important thing. at first i need to find a job there so that i can support my own fee. at the same time i can teach you chinese as well as learn english with you. but can you send me your langzhong chinese address. and if i come to langzhong the first one or two days i need a place to live. can you guide me?"

jesús! ekki alveg það sem ég hafði í huga! að hann myndi flytja til mín! en ég svaraði og sagði að hann gæti búið hjá mér bara. var að spá í að taka það fram sömuleiðis að ég vildi hann bara sem vin, ekki eiginmann. það var nóg um þannig misskilninga fyrir lífstíð síðasta mánuð.

hvernig mér tekst að koma mér í svona aðstæður skil ég ekki.



ég og gaurinn sem ég er að fara taka að mér

- kristín

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.03.2010 21:59:19 / asta

a

ég var að fara aðeins svona yfir internetnotkun mína og komst þannig að lista yfir mest heimsóttu síðurnar... kom mér svoltið í opna skjöldu

allavega hér er topp 10 listinn.. og í réttri röð



okey, sko í fyrsta lagi.. skoða ég bloggið hennar manúelu oftar en mitt eigið? wtf? og síðan sjokker nr. 2; face nr. 10.. voðalega er ég ekki háð fb, jííí

og sun er gott blað.. ef maður er ekki að leita eftir sannleikanum.. oh ég vildi óska að mbl væri ofar en sun.. jæja

interesting? no...

well, ég var ekki að hjóla þvert yfir kína, þetta er það besta sem ég býð ykkur

- ásta

» 8 hafa sagt sína skoðun

27.02.2010 15:24:15 / kristin

kk i hjolaferd

sidasta svona faerslan... og ekkert klam! eg lofa!

i fyrradag klaradi eg hjolaferdina mina. aetladi ad enda hana hjoladi inn i dali og var buin ad imynda mer myndina sem eg aetladi ad lata taka af mer fyrir framan borgina fagnandi. en nei... eg byrjadi ad hjola, thratt fyrir ad vera veik, en var svo farveik ad eg endadi grenjandi hja einhverjum sveitabae vorkennandi sjalfri mer og stoppadi fyrstu storu rutuna sem eg sa og fekk ad sitja a golfinu thvi hun var full alla leidina til dali.

thar fann eg hotel a svona 5 min og svaf i einn og halfan solarhring. - sofnadi med linsurnar i mer og var thess vegna blind i halfan solarhring, eda akkurat timann sem thad tok fyrir mig ad finna leigubil, fara a rutustodina og lata keyra mer til kunming. svo eg sa ekkert af dali!

kludur.

eg sit nuna a hostelinu i chengdu, buin med hjolaferdina mina. for samtals 1300 km. hringvegurinn um island er 1330 km! ohmygod. og pabbi segir ad thetta hafi verid miklu miklu erfidari leid, svo ha fjoll (haesti punkturinn var 3400 metrar) og ekki alltaf malbik - sigga eydilagdi thetta samt sma fyrir mer thegar hun for ad monta sig af mer vid folk, segjandi ad eg hefdi farid 3000 km. - hverjum finnst 1300 km merkilegir thegar their heyra 3000 km!

thegar eg sagdi astu eitthvad svipad kom hun med thad sem hun sagdi ad vaeri tilvitnun ur dyrunum ur halsaskogi, "aeji haltu kjafti med hann pabba thinn". eg sagdi siggu thetta og tha sagdi hun ad asta hefdi einu sinni oskrad a sig ad haetta tala um mommu sina, svo vid komumst ad theirri nidurstodu ad eg thetta vaeri meira asta heldur en dyrin i halsaskogi og vid aetludum ekki ad haetta tala um foreldra okkar.

allavega. eg se fram a ad thyngjast um svona 10 kg i thessum manudi thvi eg aetla verdlauna mig thad sem eftir er fyrir ad hafa komist thetta haha.

a morgun verd eg komin heim til langzhong. get ekki bedid eftir ad komast i heita sturtu og hrein fot!

fullt af kossum a thrjar bestu vinkonur i ollum heiminum!

- kristin


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2010 00:20:34 / siggaasta

kea dagur

Fínasti dagur hjá kea-genginu. Í raun gat hann ekki klikkað þar sem að dagurinn hófst á því að við hittum kea-goðið (en Ásta gekk skrefinu lengra og kallar hann nú ástmann sinn..).

Síðan voru stórar ákvarðanir teknar. Árshátíð kea verður haldin í júní, snemma. Kristín verður að gjöra svo vel og hraða sér heim í tæka tíð. Hin stóra ákvörðunin var sú að við fengum okkur pizzu en ekki hamborgara.. það var Ásta sem tók þá ákvörðun.. fannst hún víst nógu fóðruð í bili.

Emí lék á alls oddi og neitaði að fara sofa. Við, bestu vinkonur hennar, lofuðum henni að kúra hjá okkur í sófanum og spilltum þar með uppeldinu. Hún var afar þakklát og eldaði fyrir okkur súpu með brokkolí í eldhúsinu sínu.

Frekar góður dagur.. þó að skíðavinkonur Ástu voru alltaf að hringja og eyðileggja stemninguna.

Edda er enn sú eina með fimm ára áætlun. Ég klúðari mánaðaráætluninni og gúffaði í mig fílakarmellum. Ásta viðurkenndi að ekkert á vikuáætluninni hafði tekist.

Jú, góður föstudagur.




» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2010 12:18:09 / kristin

kk i hjolatur - sprungid dekk

jaeja... hjolaturs faersla numer tvo.

eg var ad hjola i gaer nidur 40 km brekku, mjog gaman, nema a leidinni nidur sprakk a odru dekkinu. og eg var alveg frekar taep a thvi ad na i bae fyrir myrkur. klukkan var ordin 7 og byrjad ad dimma og engin ljos. allavega. eg stoppa fyrir framan eitthvad hlid og byrja ad skipta um dekk, en thad lidur ekki a longu adur en eitthvad ungt par kemur ad tekka a mer.

thau segja mer ad haetta stussast i thessu og koma inn og borda med theim. og eg sarsvong thigg thad og sest nidur med fjolskyldunni. thau voru yi minority, en minority hoparnir i kina mega eignast fleiri born svo foreldrar theirra attu sex. og vid bordid satu thau (reyndust vera tviburar, strakur og stelpa, 21 ars), tvaer eldri systur theirra og mamman.

svo eru thau voda nice, segja mer ad gista og eg aftur thigg eg thad, gedveikt anaegd.

eftir matinn settumst vid inn i stofu og stelpu tviburinn sem taladi sma ensku utskyrdi thad fyrir mer ad thau vaeru gedveikt fataek og spurdi hvort hun maetti eiga myndavelina mina, eg sagdi nei, tha spurdi hun hvort hun maetti eiga ipodinn minn, og eg sagdi nei, og svo spurdi hun hvort hun maetti eiga simann minn. og eg sagdi nei. og tha spurdi hun "af hverju?". af hverju! jesus.

eftir thetta fannst mer frekar othaegilegt ad sitja med theim svo eg spurdi hvort thad vaeri okey ad eg faeri ad sofa. og jaja, ekkert mal.

klukkan fimm um nottina vakna eg vid thad ad einhver er ad eiga vid hurdina! eg skyldi ekki hvad vaeri eiginlega i gangi, viss um ad nu vaeri stelpan maett til ad raena mig. - eg thottist vera sofandi, en var med galopin augun ad fylgjast med.

inn kemur einstaklingur vafdur inn i saeng. inn i herberginu voru thrju rum, eg svaf i einu theirra, dotid mitt var a einu en thridja var autt. og hann sest a thad. og eg fylgist med, bidandi eftir ad hann fari ad eiga vid dotid mitt. - thad lidu 15 min thar til hann stod upp og gekk i attina til min. svo starir hann a mig, og tha akved eg ad thykjast vakna.

er tha brodirinn ekki maettur, kviknakinn! og skridur upp i til min! og eg eitthvad... "WHAT ARE YOU DOING?!" og hann tekur utan um mig og segir gedveikt rolegur "i love you". og eg utskyrdi fyrir honum ad nei, hann elskadi mig ekki og ad eg vildi ekki sofa hja honum. hann svaradi med "af hverju?" AF HVERJU?!

jesus... eg sagdi honum ad fara og ad lokum for hann. klukkan 9 for eg a faetur a svona fimm minutum, kvaddi mommuna og klikkudu systurnar og let mig hverfa adur en brodirinn vaknadi.

hjolastuttbuxur... hverjum hefdi dottid i hug ad thaer merktu "ja, eg vil sofa hja thaer".

annars er eg komin til lijiang. var himinsael thegar eg nadi thvi takmarki i dag.

kynntist stelpum thegar eg var i lugu fra kanada, og aetla hitta thaer a eftir. rakst a thaer fyrir hreina tilviljun adan. spes! serstaklega i ljosi thess ad a lugu spurdu thaer mig "omg, are you kristin? the girl on the bike?". eg er svo mikid celeb i kina, thad er rosalegt.

thangad til naest,

- kristin


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.02.2010 00:02:46 / asta

tvífarar

ski cross er skemmtilegt!

nýbakaður ólympíumeistari í greininni hann michael schmid

http://www.live-wintersport.com/thumb_uc_8889_540_Michael_Schmid.jpg

er aaaalveg einsog fyrrverandi vinur okkar hann kolbeinn einarsson á góðum degi

http://photos-f.ak.fbcdn.net/photos-ak-sf2p/v133/75/90/650662983/n650662983_127606_8075.jpg

verst að ég fann bara enga mynd af kolbirni á góðum degi.. en þið sjáið þetta er það ekki?


and it goes on... skíðaganga kvenna, boðganga sýnist mér, ég sef bara seinna

- ásta

» 12 hafa sagt sína skoðun

22.02.2010 15:12:13 / asta

move out, its over

hvernig heldur maður framhjá þessari

http://www2.pictures.fp.zimbio.com/Cheryl+Cole+Arriving+Heathrow+Airport+B6m0dTMF_z1l.jpg

og með þessu:

http://soniawild.sm4.biz/communities/4/004/006/037/184/images/4516352920.jpg

sem er karlmaður! (kannski of gróf mynd hmm, það voru samt í alvöru ekki til smekklegri myndir af henni a google ég lofa)

plús 4 aðrar..

idiot

- ásta

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.02.2010 18:29:50 / asta

öskudagur

við hötum ekkert þessa viku

bolludagur, sprengidagur og öskudagur.. næstum því betra en jólin

sigga kennari þurfti auðvitað að mæta í búning í skólann.. hún valdi á óskiljanlegan hátt að vera ljón

http://www.partydomain.co.uk/d-commerce/media/main/W/WB-PD-BAC137.jpg

verst að enginn sagði henni að ef maður velur kött á maður alltaf að vera sexy kitten

ég fór aðra leið og var raggi njáls:

http://4s7cnw.bay.livefilestore.com/y1pW8GThAyr_hgEBq5LFDxQqogrOaqEcwMRcdBR5HMXydp38qN96KnBpKg8QtYbyHRDksSwP1hv6e62qFyxh4nyjiGnR0paUNmB/DSC03855.JPG

stríðsrappari (ekki grín)

edda var að vísu líka ragnar

http://myndir.nino.is/1/5/mynd_9fDS77.jpg

við erum ekkert sérlega frumlegar

kína snýr öfugt og því er enn óljóst hvað kristin kýs að vera en líklegt verður þó að teljast að vændishjólreiðamaður verði fyrir valinu




það er fáránlega mikill vetur hérna megin á landinu

- ásta



» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2010 14:16:22 / edda

blóð


Sigríður Ásta er hér með kosin líklegasti kea-félaginn til að vera étin af vampíru.
Okkur Ástu hefur ítrekað verið neitað að gefa blóð. Nú látum við ekki bjóða okkur þetta lengur og höfum ákveðið að vera illa við blóðbankann.

Í Ástu tilfelli er það járnskortur sem er stórundarlegt miðað við allt spínatið sem hún borðar.

Í mínu tilfelli er það hundaofnæmi...hvað rugl er það

Kristín er ennþá í fýlu við blóðbankann afþví Pablo vinur hennar má ekki gefa blóð eða kannski afþví þeir bjóða ekki upp á ameríska kleinuhringi í kaffistofunni. Annars ætti hennar blóð að vera ansi sjúskað eftir þessa hjólaferð svo þetta er kannski bara win win.

Sigga Ásta blóðhetja on the other hand....mætti illa fersk í blóðbankann í rauðum maraþon bol. Svo sagði hún hjúkkunni oftar en einu sinni að hún hafi nú ekki látið það stoppa sig síðast þegar hún gaf blóð að fara út að hlaupa. Sagði að sér þætti svo notalegt að vera svona létt á sér í skokkinu. Í fyrsta skipti á ævinni sem Sigríður var mesta íþróttahetjan á svæðinu. Maðurinn í næsta stól horfði á hana með aðdáðunaraugum...að hennar sögn.

Fyrirgefðu Kristín að ég bloggi fyrir prýðisblogg en það er ekki oft sem maður keyrir heim í fýlu og Sigga tönnslast á því alla leiðina hvað sér líði nú vel að geta hjálpað heiminum.

-edda (líklegast aldrei frú Cullen)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.02.2010 09:10:33 / kristin

kk hjolagarpur

hjolaferdalagid gengur ljomandi. eg fer ad vera buin med 800 km. hansina jafn hvetjandi og alltaf sagdi mer ad haetta lullast thetta afram. eg veit ekki hvad lullast thydir samt en fra hansinu getur thad ekki verid gott.

i xichang kynntist eg frabaerum strak i einhverri hjolabud og hann for med mig i hjolatur um borgina med vini sinum. thad var gaman. svo baud hann mer i morgunmat daginn eftir sem eg samthykkti og vid akvadum ad hittast klukkan 7 fyrir utan budina hans.

their sem thekkja mig vita ad mer finnst fatt erfidara en vakna fyrir hadegi svo ad vera komin a faetur fyrir solaruppras fannst mer halfoliklegt ad eg gaeti, en eg vildi ekki vera gera vesen eftir ad hann hafdi dekrad mig allan daginn. svo eg var maett med dotid mitt og i hjoladressinu, tilbuin i nudlusupu en neiii... tha var hann ekki.

svo eg settist a eitthvad gotuhorn og beid... og beid. endadi a thvi ad bida i 40 min en tha sendi eg honum sms og sagdi ad eg saei hann ekki og eg aetlidi aftur heim, sofa meira, og kaemi vid i budinni klukkan 9. allt i lagi. nema vegna thess ad thessi hjolagaur taladi enga ensku ad tha vard eg ad skrifa sms-id a kinversku, og ekki verandi viss hvada takn eg aetti ad velja ad tha spurdi eg einhverja loggu sem hafdi komid ad tekka a mer.

eg labbadi svo til baka a hotelid nema loggan elti mig! og eg verandi von thvi ad loggur vaeru forvitnar um mig var ekkert serstaklega hissa. hef verid tekin i stutta yfirheyrslu i thremur borgum, thar sem thaer vilja vita hvad eg er ad gera, hvar eg gisti, hvert eg fer naest o.s.frv. og eins og mig grunadi for hun ad spjalla vid mig og spurja spurninga. svona var samtalid eins og eg helt...

logga: ertu ein?
kristin: ja
logga: og blablabla? (skyldi ekkert hvad hun var ad spurja)
kristin: (brosti bara)
logga: og er thetta stadurinn?
kristin: (vorum fyrir utan hotelid) ja
logga: hvad kostar nottin?
kristin: 60 rmb

svo kom hun med mer upp a herbergi. og eg sa ekkert athugavert vid thetta. taldi fram a ad eg thyrfti ad fylla ut eydublad eins og i hinum borgunum. nema svo thegar vid vorum komin inn laesti hun hurdinni! med hengilas! og eg eitthvad... "nei nei nei!! hvad ertu ad gera?" og opnadi hurdina og bad hana um ad fara, eg aetladi ad fara sofa. og hun spurdi aftur... "ertu ein?" og tha sagdi eg "nei, eg a vini". svo for hun.

thessi logga (eda oryggisvordur, eg hef i dag enga hugmynd um hver thessi madur eiginlega var) helt sem sagt ad eg vaeri vaendiskona sem kostadi 60 rmb nottina, eda rett ruman 1500 kall.

eg hef verid ad reyna imynda mer hvernig edda, sigga og asta hefdu brugdist vid i somu adstaedum. eg hugsa ad loggan/oryggisvordurinn/kripid!!!! vaeri ekki jafn lifandi i dag.

eg er nuna stodd vid lugu lake. thad er ofbodslega fallegt herna og strakanir eru faranlega myndarlegir. svo eg hef akvedid ad vera herna i nokkra daga, fer a midvikudaginn i attina ad lijiang. thad var lika nyarsdagur i gaer, 14. februar. ar tigursins er hafid.

ykkar alltaf,

- kristin


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2010 13:20:44 / asta

a

mágkona mín verður þrítug eftir nokkra daga.. má það!?

ég er að lesa bók sem heitir twenties girl, hún er skemmtileg.. ég ætla alltaf að vera tuttuguogeitthvað

það var krísufundur í heitapottinum áðan þarsem 5 ára plön voru rædd.. ég náði næstum að plana líf mitt fram að jólum.. djí það var erfitt.. að vísu planaði edda það eiginlega fyrir mig en engu að síður plan!

allavega þá var ég eitthvað að pirrast yfir að hafa ekki getað verið með í tvífaravikunni á facebook..
sigga: uu hvað meinaru eiginlega, þú ert alveg einsog fuglinn í lion king

http://media.bigoo.ws/content/gif/disney/disney_449.gif

þessi gaur! takk sigga


lítið í fréttum annað nema að setning dagsins er þessi:

"ásta has only beautiful friends"

sagt í einlægni af frekar heitum gaur


- ásta

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 43
Heimsóknir
Í dag:  113  Alls: 157144
Könnun
Hvað er kristín að gera?




Leitarbox

Dagatal